Friday, April 30, 2010

Þetta styttist...

Dísa var að vinna á næturvakt síðustu nótt og kom ekki heim fyrr en um hálfátta leytið í morgun. Við lúrðum til níu og þá fórum við af stað í bankann til þess að kaupa meiri gjaldeyri. Héldum því næst niður á VÍS, þar sem ég keypti mér viðbótartryggingu (ferðatryggingu), upp á einn og hálfan mánuð. Kreditkortið dekkaði bara þessa tvo fyrstu.

Því næst var farið í Borgun og síðan til Sjóvá. Við kláruðum þetta alveg á mettíma, þannig að Vínberið á Laugavegi var næsti viðkomustaður. Þar sem þetta var síðasti vinnudagurinn minn á Hvammi ákvað ég að kaupa smá smjatt, smjatt handa Hvammastaffinu. Strákarnir á Álfaborg fengu síðan líka smá kveðjugjöf :)

Nú er bara að byrja að pakka...

Suður Ameríka eftir 3 daga :)

Það styttist heldur betur í ferðalagið. Dísa er á næturvakt í þessum töluðu orðum og síðan er síðasti dagurinn minn í vinnunni á morgun. Verð reyndar í frí-i fyrripart dags (9-13), til þess að ganga frá nokkrum lausum endum fyrir ferðina. Planið er annars þannig að við tökum flugið út klukkan 17:00 á mánudeginum. Lendum í New York eftir sex tíma flug, um klukkan 19:00 (staðartími). Þurfum þá að bíða á flugvellinum í tæpa sex tíma, þar sem flugið til Ekvador (Guayaquil) er ekki fyrr en klukkan 00:59, þriðjudaginn 4. maí. Við tekur sex og hálfs tíma flug og er áætluð lending í Guayaquil um klukkan 06:30. Og þá eigum við eftir að koma okkur í flug yfir til Quito, þar sem við munum dvelja í spænskuskóla fyrstu tvær vikurnar :)

Segjum ykkur meir frá því seinna...
Kveðja Nonni & Dísa