Vá hvad thetta lídur allt saman hratt. Í gaer (laugardag) fórum vid í veglegan bíltúr frá Quito yfir til Otavalo med Mario og Matto (syni hans). Thadan var ferdinni sídan heitid til San Antonio Ibarra, sem er nokkud naerri landamaerunum ad Kólumbíu.
Vid logdum af stad frá Quito um klukkan 08:00 og keyrdum fljótlega í gegnum annan bae sem heitir Calderón. Thar var verslad bensín á kaggann og sídan haldid áfram. Komum innan skamms ad fyrsta vegtollinum, en their voru samtals thrír á thessari leid. Gjaldid í thessu hlidi, var 60 sent. Klukkutíma sídar komum vid ad baenum Guayllabamba, en thar er mikid um kornraekt. Vegirnir voru ansi skrautlegir, lágu utan í brottum fjallshlidunum, ýmist upp, nidur, til haegri eda vinstri. Thrátt fyrir ad vera malbikadir, thá var bara ein akrein í hvora átt og umferdin somuleidis mikil. Medalhradinn adeins um 60-70 km. Vid stoppudum á einum útsýnisstadnum og virtum landslagid fyrir okkur og tókum nokkrar myndir. Engu odru líkt
Eftir rúmlega klukkutíma var komid ad vegtolli númer 2. Í hann kostadi 1 dollar og fljótlega eftir thad komum vid í baeinn Maxima. Hérna var landslagid farid ad breytast. Meira um raektunarlond og thá adallega med maís, auk thess sem beljur sáust á beit. Hérna fengum vid okkur nýjar smákokur og heitt kakó.
Rétt ádur en vid komum til Otavalo (43.635 íbúar) um 10:30, thá keyrdum vid medfram vatninu Puerto Lago. Í Otovalo var allur midbaerinn hellulagdur, baedi gotur og gangstéttar. Fatamarkadurinn var frábaer, vid hefdum getad keypt svo miklu, miklu meira en vid gerdum. Sokum plássleysis ákvádum vid ad spara okkur adeins. Á thessum sama markadi mátti einnig finna smá markad med hveiti, krydd, maís og ávexti. Thad er nefnilega mikid um hluti sem madur hefur aldrei séd ádur.
Taepum tveim tímum sídar, faerdum vid okkur frá fatamarkadinum og yfir á dýramarkadinn, en thar er verslad med lifandi dýr. Hann var alveg ad klárast thegar vid komum, thannig ad vid sáum bara lítid brot af honum. Tharna er allur skalinn seldur, allt frá naggrísum til hesta og nautgripa.
Tridji vegatollurinn (1$) maetti okkur fljótlega og eftir hann héldum vid áfram til San Antonio Ibarra. Thar er ad finna stórfengleg handverk unnin úr tré. Vid komum til stadarins rétt rúmlega 13:00, en um thennan stad er sagt, ad ef thú kemur einu sinni, thá eigirdu eftir ad koma aftur. Vid tókum okkur rúman klukkutíma til thess ad skoda thessi glaesilegu handverk. Dísa keypti sér m.a. útskorid tafl med ekvadórskum taflmonnum, táknmyndum. Hún versladi sér einnig rottu (útskorna) til thess ad geyma hringi á. Alveg hreint út sagt mognud listskopun.
Loksins var kominn matur, (holdum vid ad fedgarnir hafi hugsad). Their voru med stórgódan stad í huga og thangad skelltum vid okkur. Thetta var einskonar sveitabýli, med byggingarstíl eins og tídkadist hérna ádur. Thad má í raun segja ad byggt sé utan um gardinn (hann er fyrir midju). Ég og Dísa pontudum okkur nautakjot. Ég fékk mér naut, med kartoflum og graenmeti, en Dísa nautagúllas, med kartoflum, graenmeti og banana (hefdbundinn réttur, var okkur sagt). Ég lagdi ekki alveg í naggrísinn, en hans tími mun koma :) Thessu var sídan skolad nidur med ískoldum bjór ahhh... - Gengum út af stadnum rúmlega 16:00 og thá átti bara eftir ad keyra alla thessa leid tilbaka, (hún var í sjálfu sér ekki svo long, en thar sem umferdin var í meira lagi, thá komum vid ekki aftur tilbaka, fyrr en tveim tímum seinna.
Í gaerkveldi var svaka veisla hérna í húsinu (fullt hús af aettingjum), tilefnid var maedradagurinn sem er í dag. Vid tókum taflid fram og tefldum nokkra leiki. Peter og Anna aetludu ad halda áfram sínu ferdalagi, en thurftu frá ad hverfa, vegna thess ad rútan biladi. Eftir kvoldmatinn fórum vid hinsvegar upp ad sofa. Mognudum degi var alveg ad ljúka.
Adios
Dísa & Nonni
Sunday, May 9, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
það er mjög gaman að lesa ferðasöguna hjá ykkur kveðja Sigga Anna
ReplyDeleteSael og blessud
ReplyDeleteTad er gaman ad sjá hvad thad eru margir sem fylgjast med. Thad gerir mann duglegri í ad blogga. Bestu kvedjur á Hvamm.
Nonni & Dísa