Wednesday, May 5, 2010

Komin heil á húfi til Sudur Ameriku

Flugid fra Islandi gekk mjog vel. Tad vard smá seinkun á tvi. Bidum á flugvellinum í New York i ruma fimm tima. Lentum á frekar fúlum gaur í vegabréfaeftirlitinu, en sluppum í gegn. Tad var tvílík rod á eftir okkur tannig ad vid vorum fegin ad vid hálfhlupum úr vélinni. Tókum sídan loftlestina fra flugstod 7 yfir i flugstod 4, svo vid gaetum flogid afram til Ecuador (Guayaquil).

Bidum tar i halftima svo vid gaetum innritad okkur i flugid, klukkan rúmlega 21:oo ad stadartima (+4) gagnvart Íslandi. Tegar vid komum til Guayaquil tók vid enn einn tollurinn, og tegar vid vorum komin med toskurnar, pontudum vid flugid til Quito. Fengum flug svo fljótt ad vid turftum ad hlaupa i innritunina, tollinn og tegar vid komum loks ad flughlidinu var verid ad kalla tá sídustu upp. (okkur). Mjog svo spennandi. Tetta var hinsvegar bara klukkutíma flug.

Lentum í Quito rúmlega 09:00 og flýttum okkur ad hringja í Mario sem aetladi ad koma ad saekja okkur. Bidum í hálftíma og nýttum tímann til tess ad hringja heim. Nonni nádi á ommu gomlu, en tad var á tali í Forsaeludal.

Sem sagt, tarna vorum vid búin med 3 flugvelli, 5 tolla og 3 flugvélar á einum sólarhring.

Mario kom og sotti okkur og tekkti okkur af myndinni a tessu bloggi. Hann sýndi okkur baeinn og fórum vid sídan heim til hans. Tar fengum vid tetta flotta herbergi (hjónaherbergid teirra ad vid holdum). Hinum megin vid ganginn er par frá Nýja-Sjálandi, tau Peter og Anna, sem eru baedi 24. Blanka, konan hans Mario, á veitingastad tannig ad tad var ekki ad undra ad kvoldmaturinn var stórgódur. 3 rétta, súpa í forrétt, kjot í adalrétt og ferskja í eftirrétt. Sváfum vel í nótt og sídan í morgun hittum vid spaensku kennarann okkar í fyrsta skipti. Hún heitir Patricia. Vorum vid í tíma hjá henni frá 08:30 til 13:30.

Erum búin ad fara í skodunarferd í gamla baeinn í Quito med Patriciu. Fórum á sogusafnid sem spannar gróflega sogu Ecudor frá upphafi til nútíma. Í lok ferdarinnar á safninu fórum vid útá svalir tar sem var rosalega fallegt útsýni. Núna erum vid búin ad fara í okkar fyrstu gonguferd ein. Fórum í verslunarkjarna og keyptum medal annars ávexti á ekki neitt. Allt hérna á gódum prís (fyrir okkur túristana) en ekki heimamenn. Erum í tessum skrifudum ordum á netkaffihúsi sem er rétt hjá heimilinu. Netid datt tar út og óvíst hvenaer tad kemur aftur.

Aetlum heim núna ad aefa spaenskuna :) Tess má geta ad Mario og Blanka eru afskaplega lidleg ad tala vid mann á spaensku tangad til tetta er ordid rett hjá manni.

Hasta luega Nonni og Dísa :)

No comments:

Post a Comment