Monday, May 17, 2010

Lunes, 17 de Mayo de 2010 (323)

Jaeja tá í thetta sinn.

Nú er ad segja frá helginni. Vid voknudum um sjoleytid á laugardeginum og bordudum morgunmat ádur en vid logdum af stad nidur á rútumidstodina í Quito. Mario og Blanca keyrdu okkur thangad en ferdinni var heitid til Mindo, smábaejar í taeplega tveggja klst fjarlaegd frá Quito.

Vid rétt svo sluppum med rútunni sem fór klukkan 08:20, fengum saeti aftast og vid tók frekar erfid ferd. Vid vorum ordin mjog svo slopp í maganum thegar vid loksins komumst á áfangastad. Vegurinn var líka gjorsamlega allur í beygjum, og mun verri heldur en sá sem vid keyrdum til Otavalo.

Thad fyrsta sem vid gerdum eftir ad vid komum til Mindo var ad hringja í stelpu sem Dísa thekkti frá thví hún var sídast í Ekvador. Johana var glod ad heyra frá okkur og sagdist vera ad vinna á fidrildabúgardi sem foreldrar hennar eiga. Thangad var ferdinni sídan heitid.

Mindo er mikill ferdamannabaer, jafnt heimamenn sem erlendir túristar. Fyrsta hostelid sem vid sáum kostadi 43 dollara og var í allra flottasta klassanum, thad naesta var uppbókad, en á thví thridja fegnum vid gott herbergi fyrir 16 dollara. Thar skildum vid bakpokana eftir og tókum leigubil fyrir 3 dollara til Mariposa de Mindo sem er í um thad bil 3,5 km fjarlaegd fra baenum. Thar hittum vid Johonu og sýndi hún okkur fidrildin. Stadurinn er í rauninni eins og mjog stórt herbergi nema úti fyrir, net yfir ollu svo ad fidrildin komist ekki í burtu. Algjor kjoradstada fyrir fidrildin thar sem madur gat séd allt frá púpum og ad lifrum á mismunandi stigum.

Eftir ad hafa kvatt Johonu fórum vid í 30 mínútna gongutúr lengra inní skóginn. Rombudum thar á veitingastad + hostel thar sem vid fengum okkur ad borda. Sátum yfir ánni sem rann medfram veitingastadnum (á yfirbyggdum palli). Thar fengum vid okkur grilladan kjúkling og ískaldan bjór :) - Tharna fengum vid líka poppkorn og ídýfu í forrétt, eitthvad annad en madur er vanur ad fá heima á Íslandi, frekar spes fyrir okkur :) Gengum sídan tilbaka pakksodd og ánaegd. Aetludum aftur nidur í baeinn, en sáum thegar vid áttum skammt eftir til Mindo, skilti sem vakti áhuga okkar beggja.

Thar var sagt frá jadarsporti sem heitir canopy. Til thess ad komast thangad, thurftum vid bara ad ganga 3 km upp fjallid. Vorum rétt búin med 1 km thegar túristastraeto keyrir framhjá og býdur far á 2 dollara (fyrir okkur baedi). Komin med nóg af gongu í bili skelltum vid okkur á thetta kostabod.

Thad er kannski betra ad segja betur frá thví hvad Canopy er. Madur er settur í belti yfir axlirnar og sídan tengdur vid línuna (vírinn), thegar madur er kominn ad honum. Vírinn liggur sídan mis- hátt og langt milli fjallshlídanna. Vírinn er annad hvort festur í tré eda staura sitthvoru megin í fjallinu. Vid vorum fimm sem ad fórum, tveir guidar og 3 túristar :) Annar leidsogumadurinn fór alltaf á undan og tók á móti hinum. Seinni leidsogumadurinn spurdi sídan odru hverju hvort ad einhver vildi fara í mariposa (fidrilda) eda (superman) ferd yfir. Í mariposa tengir madur sig vid guidinn og hangir sídan á hvolfi yfir gilid (up side down). Superman er thad sama nema madur snýr beint fram med hofudid á undan. Nonni fór eina mariposa ferd og Dísa eina ferd sem superman. Thetta voru 13 vírar (ferdir) í allt og kostadi okkur 26 dollara.

Thad var hvers sents virdi ad fara í thetta!! Erum ekki med alveg á hreinu hvad thetta tók langan tíma en giskum á svona 2 tíma. Fyrir thá sem vilja kynna sér thetta betur er vefslódin eftirfarandi:

www.mindocanopy.com

Eftir canopyid roltum vid aftur á stad og núna lobbudum vid alla leid til Mindo. Kaerkomin sturta á hostelinu!!! Kold og hressandi. Um thetta leiti var klukkan ad verda 5 og áttum vid eftir ad kaupa mida í rútuna daginn eftir. Thad var mjog gód ákvordun ad kaupa midann strax thví daginn eftir var fullt í allar rútur frá Mindo og margir thurftu frá ad hverfa. Vid hofdum skammtad okkur of lítinn pening og áttum einungis um 8 dollara eftir midakaupin. Thurftum ad eiga smá í taxa í Quito svo vid fengum okkur sinn hvorn bjórinn og horfdum á fólkid í kring. Thad var hin fínasta skemmtun en thad sem okkur thótti verra heldur en peningleysid var ad myndavélin hafdi fengid slaema hitasótt og tók núna allar myndir eins og hún vaeri á perunni. Thad er ad segja, úr fókus. Endudum med í dag ad kaupa nýja vél thegar vid sáum ad hún aetladi ekki ad jafna sig.

Um áttaleytid vorum vid ordin búin á thví og aetludum svona rétt ad dorma á herberginu okkar. Thad endadi med ad vid sváfum til tíu daginn eftir.

Planid fyrir naestu daga er fjolbreytt. Forum til Riobamba á midvikudaginn og verdum thar í einhvern tíma, líklegast fram á sunnudag. Thá holdum vid áfram til Cuenca og thadan til Mancora í Perú.

Svona í restina er rétt ad segja frá thví ad Mindo er frábaer baer, mjog svo fjolbreytt afthreying í bodi, t.d. fuglaskodun, rafting, canopy, fjórhjólaleiga, fidrildaskodun og drekaflugur (sem Nonni hélt ad vaeru risavaxnar moskíto). Hann var naerri thví stokkinn aftur upp í rútuna til Quito, thegar hann sátaer fyrst á sveimi :) - Tharna eru líka fjolmargir veitingastadir, á stad sem inniheldur álíka marga íbúa og Hofsós.

Adios Dísa og Nonni.

p.s. eitt ad lokum - mér til mikillar maedu fékk ég 12 moskitobit í thessari ferd. Oll á handleggina. Nonni fékk líka bit (5 á vinstri handlegg).........nema thad ad.........hann stokkbólgnar ekki eins og ég :( - Vidbrogdin (líkamlega) eru eins og svart og hvítt, auk thess sem Nonni skemmtir sér vel yfir thessu ollu saman :)

2 comments:

  1. Jæja...gaman, gaman, þetta er alveg æðislega spennandi, eruð þið ekki örugglega með ofnæmistöflur meðferðis til að taka við moskítóbitunum?
    Kveðja,
    Hulda frænka

    ReplyDelete
  2. Hvenær koma einhverjar myndir ? :) Mig langar svo að sjá skemmtilegar myndir.
    Kv.
    Ása frænka

    ReplyDelete