Lífid gengur sinn vanagang. Vid voknudum um sjoleytid, bordudum morgunmat og fórum í spaenskutíma fljótlega eftir thad. Erum med sagnirnar alveg á heilanum, reglulegar jafnt sem óreglulegar.
Raeddum smá um pólitík vid Patricu (kennarann), og hér er thad forsetinn sem raedur ollu, thó svo thetta eigi ad vera thrískipt (Presidente - Policia - Parlamente) Forsetinn tharf ad samthykkja allt. Okkur skildist líka á henni ad hann vaeri algjort fífl. Thad eru víst skiptar skodanir um thad :) - Hér er enginn forsaetisrádherra og sídan hefur logreglan/herinn líka ansi mikid um thad ad segja hvernig málin fara. Thad er eins gott ad hafa thau ofl med í rádum. Toludum líka um efnahagsmálin vid hana, sogdum henni hversu skítt Íslendingar hafa thad í augnablikinu, en hún var ekki lengi ad máta okkur. Sagdi ad hér vaeri allt í rúst, félagsmál, velferdamál og efnahagsmál.
Hér hafa einungis 10% atvinnubaerra manna háar tekjur og greida sérstakan hátekjuskatt sem er 20%. Adrir, sem eru um tad bil 30% fólks á vinnumarkadi greida 9.34% í skatt og er Patricia tar á medal. Hins vegar og thad er ljóti punkturinn í thessu daemi, thá eru 60% fólks (atvinnulaust) sem gaeti annars verid úti ad vinna. Í framhaldinu spurdum vid hvort thad vaeru greiddar út einhverjar atvinnuleysisbaetur? Já var svarid, heilir 60$ dollarar á mánudi. (taepar 8.000kr íslenskar). Algjor hneykslun eins og hún ordadi thad... Var himinlifandi thegar vid sogdum henni ad lágmarksbaeturnar á Íslandi vaeru 1000$ á mánudi. Hún var ekki jafnhrifin ad heyra af thví hvad skattarnir eru háir, féll naestum í yfirlid, ef svo má segja (og thá sérstaklega thegar vid minntumst á fjármagnstekjuskattinn)... Vel á minnst, hér er virdisaukaskatturinn 12%.
Er Icesave ekki alveg gleymt? (Og já hún vissi hvad Icesave er).
p.s. Eyjafjallajokull er mikid í fréttum hérna, og nafnid á honum er rétt borid fram ;)
Mucho gracias
Nonni og Dísa
Tuesday, May 11, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment