Sunday, May 2, 2010

Út á morgun

Dagurinn í dag er búinn að vera furðulegur. Fyrir mína parta get ég sagt að ég sé orðinn rosalega spenntur. Efast stórlega um að sofa nokkuð næstu nótt. Er margsinnis búinn að yfirfara alla hluti, í þeirri von um að gleyma ekki neinu.

Dísa er að klára síðustu kvöldvaktina og kemur heim von bráðar. Ætla að elda síðbúinn kvöldmat handa henni, innmat, a la mexico style, með sósu og hrísgrjónum ;) - Planið á morgun er með þeim hætti að Kristín og Kári (og litla sæta Káradóttir) ætla að skutla okkur suður með sjó, og út á flugvöll. Við fljúgum út klukkan 17:00, svo það ætti að verða rúmur tími að leggja af stað um klukkan 13:30, úr bænum.

Litum í dag í heimsókn til Söru í kveðju-vöfflukaffi, ummm ég borðaði yfir mig :) - Það var gaman að hitta á þig. Takk fyrir okkur :) - Hreiðar kom síðan við í gær og kvaddi líka.

En jæja, ætla að snúa mér að eldamennskunni.
Kv. Nonni

No comments:

Post a Comment