Sunday, June 27, 2010

Domingo 27 de Junio de 2010 (879)

Thá erum vid komin til Oruro. Komum hingad í gaerkvoldi og thá var farid beint ad sofa eftir um thad bil 11 tíma rútuferd frá Torotoro. Rútuferdirnar voru reyndar tvaer, thar sem vid tókum sídan adra rútu frá Cochabamba.

En snúum okkur ad Torotoro. Thetta er pínulítill baer í um thad bil 5 tíma fjarlaegd frá Cochabamba. Vid komuna thangad, um eittleytid eftir hádegi (sídastlidinn fostudag) fórum vid á Los Chocos (hostelid) og fengum okkur herbergi. Frekar skondid ad herbergid okkar var einskonar stúdíóíbúd uppi á thaki. Vid vorum ad enda vid ad setja myndir inn á Facebook, endilega skodid thaeir.

Eftir ad hafa skilid toskurnar eftir, leitudum vid ad upplýsingum um ferdir í thjódgardinn. Á skrifstofunni hittum vid Derrick (Rick), Ástrala sem ólst uppi í Sudur Afríku og José sem spurdu hvort ad vid vaerum til í ferdast saman til ad splitta kostnadinum. Vid stukkum á thetta enda mjog fínt fyrir okkur thar sem ad José er Spánverji og thjódgardsvordur á Spáni í thokkabót.

Thad eru engir enskumaelandi guidar í Torotoro (allavega ekki á túristaskrifstofunni) thannig ad José gat thýtt thad sem vid skildum ekki. Thad var ákvedid ad hittast klukkan 7 morguninn eftir, en thá aetludum vid ad skoda Ithas (hella sem eru sagdir vera Inca borg), Umajalanta (hellir) og Tankar Pampa (risaedlusporin).

Their félagar vissu hinsvegar af risaedlusporum vid ána, rétt hjá baenum, thannig ad thangad héldum vid í stuttan gongutúr á fostudagseftirmiddeginum. Vid fundum loksins sporin eftir nokkra leit, og dádumst af theim í nokkra stund. Okkur leid eins og vid vaerum med landkonnudum, enda voru their mikid ad velta hlutunum fyrir sér.

José er mikill fuglaáhugamadur og thad vard úr ad vid gengum áfram medfram árfarveginum, í leit ad thekktum fuglum á thessu svaedi, sáum m.a. graena páfagauka. Thetta vard heldur lengri gangur, en vid bjuggumst vid, enda komum vid ekki aftur í baeinn, fyrr en ad verda sjo um kvoldid, eflaust búin ad rolta eitthvad um 10 kílómetra. Thá fórum vid heim á hostelid og hofdum okkur til fyrir kvoldid.

Thá skelltum vid okkur á veitingastad sem gerir ekta heimagerdan mat, al mamá. Thar fengum vid okkur dýrindis kjotmáltíd ásamt medlaeti, ásamt threm dokkum bjórum, en hann er uppáhaldid okkar hérna úti. Maturinn var stórgódur og reikningurinn hljómadi uppá einungis 1000kr, fyrir okkur baedi. Matur + 3 stórir bjórar (630ml hver). Ótrúlegt hreint út sagt. Bólivía er sko ódýrt land.

Daginn eftir keyrdum vid af stad, í bíl sem mátti muna fífil sinn fegri. Á einum stad thurftum vid ad ganga upp eina brekkuna, thví bíllinn spóladi bara í lausamolinni. Thetta hafdist allt ad lokum og vid komumst á fyrsta áfangastad, ólíkt kanadíska stelpnahópnum sem aetladi líka um morguninn. Sá hópur vard ad sleppa thessum áfanga thar sem hópferdabíllinn theirra hafdi sig ekki upp fjalllendid.

Fyrst thurftum vid ad ganga ad bóndabýli og borga adgangseyrinn (10 bs á mann), sídan var haldid áfram, en vid áttum eftir ad thramma tharna um og klifra í um 3 tíma. (Vid minnum á myndirnar á sídunni hans Nonna á Facebook).

Eftir Ithas-borgina fórum vid aftur nidur med bílnum ad afleggjaranum ad Umajalanta. Eftir um 1 kílómetra labberí komum vid ad húsi thar sem adgangsmidarnir okkar voru thékkadir en thad kostadi 20 bs á mann, bara ad komast inní thjódgardinn. Skildum vid allt lauslegt eftir tharna thar sem ad hellirinn er ansi throngur á koflum. Med hjálma, vasaljós og myndavél gengum vid nidur ad hellinum.

Sjálfur hellismuninn er mjog stór en sídan threngist hann eftir thví sem ad innar dregur. Thad áttu ad vera ledurblokur í hellinum en vid sáum engar thví thad hafdi verid fólk á undan okkur med tilheyrandi hávada og ljósagangi. Hofdu thaer thví flutt sig innar, thangad sem vid komumst ekki. Tharna inni er fullt af dropasteinum, en thví midur hefur fólk í gengum tídina brotid thá alla til ad hafa med sér sem minjagripi. Plús thad ad thad er sáralítil endurnýjun á theim thar sem vatnid er haett ad renna eins mikid tharna í gegn og thad gerdi ádur.

Vid fórum í heildina 7 kílómetra hring tharna inni (og einhverja rúmlega 100 metra nidur) hefdum aldrei trúad thví ad okkur gaeti lidid svona vel inní einhverjum helli. Guidinn okkar hann Pablo, sagdi okkur á einum stadnum ad slokkva á vasaljósunum til ad sjá hversu dimmt vaeri í raun tharna inni. Allt bleksvart, sáum ekki baun.

Á odrum stad fundum vid ad thad var holrúm undir okkur. Spurdum vid Pablo sem sagdi ad annar hellir vaeri undir thessum. Eins gott ad detta ekki í gegn ;) Vid enda hringsins ádur en vid snerum vid, (hina leidina út) var lítil tjorn og í hana rann vatn nidur einn vegginn. Svo sem ekki merkilegt nema fyrir thad leyti, ad í tjorninni voru blindir fiskar!!! Hafa their adlagad sig myrkrinu thannig ad their hafa ekki lengur thorf fyrir augu.

Sídasta stoppid var Tankar Pampa. Thangad gengum vid, enda vorum vid á leidinni aftur til Torotoro. Frá Umajalanta ad Torotoro eru 6,3 kílómetrar og frá Torotoro ad Tankar Pampa eru 1,7 kílómetrar. Thad var ansi magnad ad sjá risaedlusporin, en thad tharf smá ímyndunarafl til ad sjá fyrir sér edlurnar thramma tharna um. Thad var ekki erfitt med thessa snillinga, sér vid hlid. (Andstaett thví sem ad stendur í Lonely Planet bókinni, thá má ekki hreinsa sporin med bursta), thannig ad vid fylltum thau med raudum sandi í stadinn til ad gera thau skýrari.

Sporin eru í bergi sem kom til af thví ad einu sinni var stoduvatn á thessu svaedi thar sem risaedlurnar komu ad. Vardveittust sporin í mjukum jardveginum sem sídar vard ad bergi. Tankar Pampa var einu sinni landbúnadarland en fyrir einhverjum árum sídan skoladi regnjardveginum í burtu og komu thá sporin í ljós. Thannig ad í rauninni ef ad jardvegur vaeri hreinsadur í burtu á stóru svaedi myndu morg hundrud spor koma í ljós.

Vid verdum líka ad segja ykkur adeins meira frá honum Pablo. Vid fyrstu sýn virtist hann um sextugt en sídar sagdi hann okkur, ad hann vaeri 44 ára!!! Ha, hugsudum vid bara en sogdum ekki neitt. Auk thess ad vera leidsogumadur fyrir túrista er hann bóndi og á átta born, allt strákar. Svona fer lífid hérna og sólin med fólkid. Thad virdist oft eldra en thad er.

En aftur ad Oruro. Vid erum búin ad eyda deginum í dag í slugs hérna, enda erum vid ad bída eftir lestinni til Uyuni en hún fer kl 19:00. Vid aetludum med rútu, en haettum sídan vid. Thad er frekar ótrúlegt en einu rúturnar hérna til Uyuni fara seint á kvoldin og naeturnar. Thar sem lestin var ekki thad rosalega dýr og vid komin med uppí kok af rútum í bili ákvádum vid ad fara frekar med henni. Í Uyuni aetlum vid ad skoda saltsléttuna og eftir thad er stefnan tekin á baeinn Tarija en thad verdur sídasta stopp ádur en vid forum til Argentínu.

Vid aetludum til Potosí ad skoda silfurnámurnar en ákvádum ad sleppa theim. Ferdin í Umajalanta var thad gód og í rauninni svipud og í Potosí nema thad eru námur gerdar af monnum en Umajalanta er audvitad náttúrulegur hellir.

Adios, Dísa og Nonni

Wednesday, June 23, 2010

Miércoles, 23 de Junio de 2010 (854)

Komum til Cochabamba í gaer og aetlum bara ad dvelja hérna thar til á morgun. Planid er ad taka rútu til Torotoro klukkan sex í fyrramálid.

Í gaer lentum vid í hinu mesta basli vid ad finna baedi hostelid okkar, ásamt upplýsingum um ferdir yfir til Torotoro. Thetta hafdist allt saman á endanum og í dag tókum vid okkur bara tvo klukkutíma í ad finna umraedda soluskrifstofu. Tókum sídan hressilegan gongutúr tilbaka á hostelid og vorum alveg dauduppgefin thegar vid loksins komumst thangad. Vedrid er nefnilega algjor steik í augnablikinu, yfir 30 stiga hiti, sól og blída. Thad hreyfir auk thess ekki vind hérna.

Erum rosalega spennt yfir framhaldinu, en vid stefnum á ad vera í Torotoro (Thjódgardinum) thar til á laugardaginn (thar aetlum vid ad skoda, hella og risaedluspor), sídan aetlum vid tilbaka til Cochabamba og frá theim stad holdum vid til Uyuni ad skoda saltslétturnar.

Held thad sé ekki frá fleiru ad segja. Hafid thad gott heima á Íslandi ;)

Kv. Nonni og Dísa

Saturday, June 19, 2010

Sábado, 19 de Junio de 2010 (818)

Erum komin til La Paz.

Erum í ferlega lélegum tolvum, thannig ad thetta verdur stutt í thetta skipti. Eins og thid vitid thá fórum vid út á Titicaca vatn (Perú-megin), í flotta siglingu. Gistum ekki eins og vid héldum á fljótandi eyjunum (Uros), heldur komum einungis thar vid, stoppudum í c.a. hálftíma og héldum sídan áfram. Vid aetlum ad segja nánar frá thessu vid taekifaeri, en vid getum thó sagt ad vid holdum áfram ad upplifa, lífshaetti sem eru talsvert frábrugdnir thí sem vid eigum ad venjast heima.

Á Uros eyjunum sefur fólk t.d. í strákofum. Thad tharf einnig ad flytja eyjarnar til til ádur en regntímabilid skellur á, svo thaeir fljóti ekki í burtu thegar vatnsyfirbordid haekkar.

Frá Uros-eyjum héldum vid yfir á adra eyju, en thad var taeplega 3 klst sigling (Thetta er virkilega stórt vatn). Á theirri eyju gistum vid yfir nóttina og voru adstaedurnar svipadar theim sem voru á Íslandi í kringum 1900. Hús byggd úr leir, ekkert rafmagn, einungis kerti, engin kynding. Eldamennskan, jebb fengum mjog gódan mat sem eldadur var á hlódum. Allt rosalega frumstaett.

Um kvoldid fórum vid sídan á dansiball, thar sem vid vorum látin dansa ad haetti innfaeddra. Thetta var kostulegt í alla stadi. Ógleymanleg upplifun.

Daginn eftir var haldid af stad tilbaka. Komum vid á thridju eyjunni og skodudum okkur um. Thegar vid komum til Puno var flest allt lokad vegna verkfalla. Vid vorum thí í talsvert mikilli óvissu um hvort vid kaemumst áfram til Bólivíu daginn eftir. Thad var víst búid ad blokkera alla vegi út úr borginni.

Vid voknudum snemma og bidum eftir ad vid yrdum sótt, tíminn leid og beid og enginn kom. Um átta leytid fréttum vid ad annad fyrirtaeki aetladi yfir, og thá urdum vid ad hafa hradar hendur. Fórum og fengum hluta endurgreiddan, nenntum ekki ad standa í stappi út af 300kr. Fengum mida hjá Panamericano Travel og drifum okkur út á rútustod. Ferdin yfir til Bólivíu gekk vel, ekkert vesen vid landamaerin auk thess sem vid gengum sídasta spolinn frá Perú og yfir til Bólivíu, thad var spes.

Komum til La Paz rétt eftir hádegi og gistum á flottu hosteli, sem er í rauninni hótel, 3 stjornu. Thad heitir hostel Provenzal. Gistum á 4 haed med flottu útsýni yfir midbaeinn, er med badherbergi og sjónvarpi kostar 2850kr/nóttin fyrir okkur baedi.

Stefnum á ad vera hérna í nokkra daga, sídan holdum vid áfram nidur landid og til baejar sem heitir Oruro.

Hafid thad sem allra best. Vid hofum thad gott, thar sem thetta er ódýrasta landid til thessa :)

Kv. Nonni og Dísa

Monday, June 14, 2010

Ferdin til Machu Picchu (783)

Facebook er afar hentugt til thess ad hlada nidur myndum. Thess vegna tókum vid nokkrar vel valdar og smelltum thangad inn í gaer. Ástaedan fyrir thví, var sú ad thessi vefur lá nidri.

http://www.facebook.com/album.php?aid=2067313&id=1442375311

Thessi ferd er ein sú mesta lífsreynsla sem ég hef nokkurn tímann gengid í gegnum (Nonni). Dísa var ad fara til Machu Picchu í annad sinn, en hún fór tharna fyrir 2 árum. Thá thurfti hún hálfpartinn ad hlaupa tharna í gegn, eftir ad hafa gengid upp á Wayna Picchu. Nú gáfum vid okkur hins vegar, gódan tíma í ad skoda svaedid og fengum frábaera leidsogn. Okkur leid bara eins og vid hefdum flust nokkur hundrud ár aftur í tímann.

Nú vardandi thessa ferd thá skodudum vid daemid afar vel ádur en vid logdum af stad. Med thví ad taka bílferdina sporudum vid okkur um thad bil 50-60 túsund krónur en ef vid hefdum tekid lestina alla leid og tilbaka aftur og inn í thví var enginn matur. Thad er greinilega okrad á thessu, einfaldlega af thví ad bílferdin er vaegast sagt ansi slaem.

Vid borgudum 256 dollara (33.280kr) fyrir okkur baedi og fyrir thad fengum vid. Bílferdina, fram og til baka. Hádegismat á leidinni til Aguas Calientes. Lestarmida sídasta spolinn til Aguas Calientes og aftur til baka daginn eftir. Tveggja rétta kvoldrétt í Aguas Calientes og gistingu thar um nóttina á virkilega fínu hosteli, sem innihélt heita sturtu, en thaer eru víst ekki sjálfgefnar hérna. Daginn eftir fengum vid lítinn morgunmatspakka, sem innihélt epli, súkkuladi og smá smjatt, smjatt :) - Adgongumidinn ad Machu Picchu var líka innifalinn, ásamt leidsogumanninum, en midinn sjálfur kostar 6.500kr fyrir manninn.

Thad eina sem stódst ekki hjá thessu fyrirtaeki (www.condetravelperu.com) var ad bíllinn sem vid áttum ad fara med, (tíu manna) biladi, eda svo sogdu their. Thannig ad vid fórum med staerri bíl, sem vard til thess ad vid fórum seinna af stad og urdum heldur lengur á leidinni, bíllinn átti sídan eftir ad bila (sá sem vid fórum med), thannig ad hádegishléid var ekki fyrr en um thrjú-leytid. Ad endingu komum vid til baejarins um klukkan 18:30. Eftir ad hafa lagt af stad um klukkan 07:00 um morguninn, en ekki 05:30 eins og sagt var.

En thetta var allt, vel thess virdi, thví um leid og vid komum til Aguas Calientes, thá lá vid ad madur dytti fram fyrir sig, yfir fegurd stadarins. Thad eru ekki til lýsingarord fyrir sjálfan stadinn og landslagid thar í kring. Vorum eiginlega strax farin ad sjá eftir thví ad thurfa ad fara strax aftur, daginn eftir.

Um kvoldid bordudum vid á veitingastadnum en thar fékk ég mér kjúklingasúpu í forrétt og kjúklingabringu med salati og sósu í adalrétt, á medan Dísa fékk sér tómatsúpu í forrétt og kjot, kartoflur og graenmeti í adalrétt. Eftir matinn drifum okkur upp á hostel, svo madur naedi einhverjum svefni fyrir gonguna. Vid voknudum korter í fjogur, tókum okkur til og hentumst af stad. Skildum hluta af dótinu eftir nidri í móttoku (en stóru bakpokarnir urdu eftir í Cusco á hostelinu thar).

Thví naest var haldid af stad. Vorum um thad bil hálftíma ad ganga ad fjallinu í kolsvarta myrkri, med stjornurnar beint fyrir ofan okkur, í hreint út sagt dásamlegu vedri. Thegar vid komum ad fjallinu hittum vid gonguhóp, sem var blessunarlega med vasaljós medferdis. Vid fylgdum honum thví upp fjallid, upp hverja steintroppuna á faetur annarri. Mikil threkraun ad komast upp á rétt rúmum klukkutíma.

Nú hvad vardar restina á thessum pistli, thá vísa ég á myndirnar á Facebook, og thá sérstaklega thegar vid erum í Machu Picchu. Thar segja meira en morg ord.

Ég aetla samt ad grípa adeins inn í ferdina á leidinni til baka. Vid logdum af stad á laugardeginum med lestinni rétt yfir eitt og áfram hélt sídan ferdalagid med bíl til Cusco. Thangad vorum vid komin rétt um hálf ellefu um kvoldid. Og thar med er sagan ekki búin, thví vid áttum pantad far til Puno, fjogur um nóttina. Vid fengum herbergi á hostelinu og sváfum til thrjú, tókum sídan til, og fórum med leigubíl nidur á rútustodina hálftíma sídar. Ferdin til Puno gekk vel, sem betur fer og var klárlega besta rútuferdin fyrir utan ferdina med Cruz del Sur til Nasza, en hún var líka í allt odrum gaedaflokki, thessi kostadi einungis 36 sol fyrir okkur baedi, eda 1800kr. Fyrirtaekid heitir Power og vid maelum med thví.

Vid komum til Puno á áetlun og fyrsti madur sem vid hittum á, er í samstarfi vid hostelid sem vid gistum á. Thad heitir, The Walk On Inn Puno og er med thví besta sem vid hofum gist á, fyrir einungis 9 dollara, per/nótt/per/pers. Madurinn sem rekur hostelid var svolítid hissa á thví hvad vid vaerum komin snemma frá Cusco og brosti sídan bara thegar vid sogdum honum frá ferdalaginu.

Hér er yndislegt ad vera. Gódur veitingastadur í naestu gotu, vid erum stadsett mjog nálaegt midbaenum og hédan er stutt í allt. Aetlum ad dvelja hérna í tvaer naetur í vidbót og aetlum sídan út á Titicaca vatn, út í eyjarnar sem byggdar eru úr hálmi og stráum. Thar aetlum vid ad gista í eina nótt og koma sídan aftur til Puno. Aetlum hugsanlega ad vera hérna lengur, kannski tvo daga, en sídan verdur haldid áfram yfir til Bólivíu, Copacabana verdur fyrsta stopp og thadan forum vid áfram til La Paz. Í Bólivíu er 4 tíma mismunur, midad vid Ísland, en í Perú er munurinn 5 tímar.

Yfir og út,
Dísa og Nonni

Wednesday, June 9, 2010

Miércoles, 9 de Junio de 2010 (666)

Skodudum Cusco í gaer, hátt sem lágt. Gengum um midbaeinn, skodudum sofn og tókum sídan smá fjallgongu upp fyrir baeinn. Tvílíkt útsýni, svona rétt fyrir sólarlag. Klárlega einn af hápunktum ferdarinnar.

Í dag aetlum vid ad taka lífinu med ró, og jafnvel á morgun líka. Á fostudaginn aetlum vid til Machu Picchu og leggjum af stad klukkan fimm um morguninn. Forum med litlum hópferdabíl ásamt átta odrum. Keyrum hluta leidarinnar og tokum sídan lest, enda var thad ódýrasti kosturinn.

Gistum eina nótt í baenum Agua Caliente (já, baerinn ber nafnid, heitt vatn) og sídan tekur vid 1-1.5 klst ganga upp upp ad rústunum í Machu Picchu. Forum snemma af stad og fáum sídan 2-5 klst til ad skoda rústirnar. (tvaer med guide, og sídan thrjár fyrir okkur, svona private). Eftir thetta tekur sídan vid, gangan nidur, sídan lestin og bílferdin til baka.

Thad er ekki frá fleiru ad segja ad sinni.

Adios, Nonni og Dísa

Monday, June 7, 2010

Lunes, 7 de Junio de 2010 (650)

Í fyrradag fórum vid í flug yfir Nazca-línurnar. Vid aetlum ad birta hérna nokkrar myndir frá theirri ferd. Vid tókum líka nokkur myndbond, en thad tekur allt of langan tíma ad hlada theim inn.
Meira um Nazca: Línurnar sjást best úr lofti, en thetta eru munstur/myndir af allskonar dýrum og formum sem indjánar gerdu fyrir langa longu. Línurnar sjálfar uppgvotudust sídan fyrir slysni snemma á 20. old af Thjodverja. Hér má sjá greinargódar upplýsingar um línurnar og sídan Machu Picchu. (http://www.raunvis.hi.is/~oliverh/reisa/peru.html)

Vélin sem vid flugum í, var ad gerdinni Cessna. Hér sést Nonni ganga í áttina ad vélinni.

Í thessa rellu komust sex manneskjur. Einn flugmadur, adstodarmadur og fjórir farthegar.
Nonni sestur inn í vélina, en vid hlidina á honum sat strákur frá Frakklandi.

Ég sat fyrir framan Nonna, haegra megin í vélinni.

Hérna má sjá mynd af flugmanninum og adtodarmanni hans.

Thetta eru línurnar sem vid flugum yfir.

Thad er erfitt ad sjá thetta. Best ad rýna vel í myndina (Cóndor).

Hér má sjá Colibrí fuglinn.

Eftir thetta smelltum vid af nokkrum myndum yfir svaedid.

Ekkert smá fallegt útsýnid tharna.

Nonni naut thess alveg ad vera í loftinu og hefdi viljad vera lengur. Dísa var hins vegar ordin flugveik í restina og var ánaegd ad komast á fast land aftur.
--------
Eftir thetta fórum svo ad skoda eldgamlar grafir, eda indjána sem voru uppi fyrir um 2000 árum og thó ad grafirnar hafi verid eydilagdar af raeningjum og ýmsum skrautmunum stolid thá er haegt ad skoda beinagrindur og jafnvel múmíur í fotum og med hár á hofdi.

Thad er smá skýli yfir hverri grof fyrir sig. Hitinn var líka algjor steik.
Hér má sjá eina grofina, thad sést glitta í hvernig múmían liggur saman hniprud.
Kvedja Dísa og Nonni

Saturday, June 5, 2010

Dísa í svifflugi í Lima, hofudborg Perú (622)


Thetta er stadurinn sem vid fórum á.


Dísa med svifflugsmanninum, Ricardo.

Verid ad gera klárt fyrir flugtak.

Dísa lent, alsael med thessa skemmtilegu lífsreynslu.

Vid aetludum ad vera grand á thví og hlada inn video-inu sem hún tók uppi í háloftunum. Thessi sída vill hins vegar einungis taka vid (100mb), en sjálft myndbandid er 243mb. Aldrei ad vita nema thad birtist á Facebook, von brádar.

Forum í kvold frá Nazca og yfir til Cusco. Thad verda 12-13 tímar í rútu. Aetlum ad fá okkur eitthvad gott ad borda núna ;)

Kv. Nonni og Dísa

Wednesday, June 2, 2010

Miércoles, 2 de Junio de 2010 (579)

Erum búin ad koma okkur vel fyrir í Lima, en stoppid verdur temmilega stutt, thví á fostudaginn heldur ferdalagid afram. Thá skal haldid til Nazca, ad skoda Nazca-línurnar (Sjást adeins úr lofti, thannig ad vid tokum flugferd yfir svaedid). Aetlum ad dvelja thar, thar til á laugardagskvold og thá tokum vid adra rútu yfir til Cusco.

Stoppum vonandi thar í einhverja daga, svona til thess ad slaka vel á fyrir Machu Picchu.

Vid erum búin ad taka Lima med trompi. Vid gistum í hverfi sem ber heitir Miraflores á fínu hosteli. Thad er virkilega flott, og oruggt eftir thví. Tókum stóran gongutúr í gaer og reyndum m.a. ad fara í svifflug, en thar sem thad var ekki naegur vindur, urdum vid ad haetta vid. Flugid verdur thví ad bída um sinn.

Skodudum í stadinn safnid, Oro del Perú, sem segir frá sogu Perú og fórum eftir thad í bíó, á myndina Prince of the Persia. Hún kom okkur skemmtilega á óvart, thó svo ad taeknibrellurnar hafi verid too much, undir lokin.

Um 11 leytid í morgun fórum vid af stad og tókum taxa í dýragardinn. Dvoldum thar í rúma 3 tíma og heiulsudum upp á ljónin, tígrisdýrin, birnina, ásamt odrum dýrum sem vid hofdum ekki séd. Tharna voru líka dýr sem vid hofdum séd ádur (live), en thau voru í minnihluta. Thad vantadi bara slongurnar handa Nonna og kongulaernar handa Dísu.

Parque de la agua (Parque de la Reserva) er sidan gosbrunnagardurinn sem vid aetlum í, í kvold. Thar eru stadsettir gosbrunnar í tugatali. Okkur skilst einnig ad thetta sé staersti gardur sinnar tegundar sem til er. Ástaedan fyrir thví ad vid aetlum í kvold, er sú ad brunnarnir eru upplýstir. Í ollum regnbogans litum. Thad má audveldlega finna myndbond á Youtube, thid ykkar sem viljid skoda hann nánar.

Thar sem tolvan sem vid erum í, er svo haeg, thá setjum vid ekki inn neinar myndir. Thaer verda ad bída um sinn :)

Vid skemmtum okkur mjog vel, sem fyrr.

Kaerar kvedjur :)
Nonni og Dísa