Thá erum vid komin til Oruro. Komum hingad í gaerkvoldi og thá var farid beint ad sofa eftir um thad bil 11 tíma rútuferd frá Torotoro. Rútuferdirnar voru reyndar tvaer, thar sem vid tókum sídan adra rútu frá Cochabamba.
En snúum okkur ad Torotoro. Thetta er pínulítill baer í um thad bil 5 tíma fjarlaegd frá Cochabamba. Vid komuna thangad, um eittleytid eftir hádegi (sídastlidinn fostudag) fórum vid á Los Chocos (hostelid) og fengum okkur herbergi. Frekar skondid ad herbergid okkar var einskonar stúdíóíbúd uppi á thaki. Vid vorum ad enda vid ad setja myndir inn á Facebook, endilega skodid thaeir.
Eftir ad hafa skilid toskurnar eftir, leitudum vid ad upplýsingum um ferdir í thjódgardinn. Á skrifstofunni hittum vid Derrick (Rick), Ástrala sem ólst uppi í Sudur Afríku og José sem spurdu hvort ad vid vaerum til í ferdast saman til ad splitta kostnadinum. Vid stukkum á thetta enda mjog fínt fyrir okkur thar sem ad José er Spánverji og thjódgardsvordur á Spáni í thokkabót.
Thad eru engir enskumaelandi guidar í Torotoro (allavega ekki á túristaskrifstofunni) thannig ad José gat thýtt thad sem vid skildum ekki. Thad var ákvedid ad hittast klukkan 7 morguninn eftir, en thá aetludum vid ad skoda Ithas (hella sem eru sagdir vera Inca borg), Umajalanta (hellir) og Tankar Pampa (risaedlusporin).
Their félagar vissu hinsvegar af risaedlusporum vid ána, rétt hjá baenum, thannig ad thangad héldum vid í stuttan gongutúr á fostudagseftirmiddeginum. Vid fundum loksins sporin eftir nokkra leit, og dádumst af theim í nokkra stund. Okkur leid eins og vid vaerum med landkonnudum, enda voru their mikid ad velta hlutunum fyrir sér.
José er mikill fuglaáhugamadur og thad vard úr ad vid gengum áfram medfram árfarveginum, í leit ad thekktum fuglum á thessu svaedi, sáum m.a. graena páfagauka. Thetta vard heldur lengri gangur, en vid bjuggumst vid, enda komum vid ekki aftur í baeinn, fyrr en ad verda sjo um kvoldid, eflaust búin ad rolta eitthvad um 10 kílómetra. Thá fórum vid heim á hostelid og hofdum okkur til fyrir kvoldid.
Thá skelltum vid okkur á veitingastad sem gerir ekta heimagerdan mat, al mamá. Thar fengum vid okkur dýrindis kjotmáltíd ásamt medlaeti, ásamt threm dokkum bjórum, en hann er uppáhaldid okkar hérna úti. Maturinn var stórgódur og reikningurinn hljómadi uppá einungis 1000kr, fyrir okkur baedi. Matur + 3 stórir bjórar (630ml hver). Ótrúlegt hreint út sagt. Bólivía er sko ódýrt land.
Daginn eftir keyrdum vid af stad, í bíl sem mátti muna fífil sinn fegri. Á einum stad thurftum vid ad ganga upp eina brekkuna, thví bíllinn spóladi bara í lausamolinni. Thetta hafdist allt ad lokum og vid komumst á fyrsta áfangastad, ólíkt kanadíska stelpnahópnum sem aetladi líka um morguninn. Sá hópur vard ad sleppa thessum áfanga thar sem hópferdabíllinn theirra hafdi sig ekki upp fjalllendid.
Fyrst thurftum vid ad ganga ad bóndabýli og borga adgangseyrinn (10 bs á mann), sídan var haldid áfram, en vid áttum eftir ad thramma tharna um og klifra í um 3 tíma. (Vid minnum á myndirnar á sídunni hans Nonna á Facebook).
Eftir Ithas-borgina fórum vid aftur nidur med bílnum ad afleggjaranum ad Umajalanta. Eftir um 1 kílómetra labberí komum vid ad húsi thar sem adgangsmidarnir okkar voru thékkadir en thad kostadi 20 bs á mann, bara ad komast inní thjódgardinn. Skildum vid allt lauslegt eftir tharna thar sem ad hellirinn er ansi throngur á koflum. Med hjálma, vasaljós og myndavél gengum vid nidur ad hellinum.
Sjálfur hellismuninn er mjog stór en sídan threngist hann eftir thví sem ad innar dregur. Thad áttu ad vera ledurblokur í hellinum en vid sáum engar thví thad hafdi verid fólk á undan okkur med tilheyrandi hávada og ljósagangi. Hofdu thaer thví flutt sig innar, thangad sem vid komumst ekki. Tharna inni er fullt af dropasteinum, en thví midur hefur fólk í gengum tídina brotid thá alla til ad hafa med sér sem minjagripi. Plús thad ad thad er sáralítil endurnýjun á theim thar sem vatnid er haett ad renna eins mikid tharna í gegn og thad gerdi ádur.
Vid fórum í heildina 7 kílómetra hring tharna inni (og einhverja rúmlega 100 metra nidur) hefdum aldrei trúad thví ad okkur gaeti lidid svona vel inní einhverjum helli. Guidinn okkar hann Pablo, sagdi okkur á einum stadnum ad slokkva á vasaljósunum til ad sjá hversu dimmt vaeri í raun tharna inni. Allt bleksvart, sáum ekki baun.
Á odrum stad fundum vid ad thad var holrúm undir okkur. Spurdum vid Pablo sem sagdi ad annar hellir vaeri undir thessum. Eins gott ad detta ekki í gegn ;) Vid enda hringsins ádur en vid snerum vid, (hina leidina út) var lítil tjorn og í hana rann vatn nidur einn vegginn. Svo sem ekki merkilegt nema fyrir thad leyti, ad í tjorninni voru blindir fiskar!!! Hafa their adlagad sig myrkrinu thannig ad their hafa ekki lengur thorf fyrir augu.
Sídasta stoppid var Tankar Pampa. Thangad gengum vid, enda vorum vid á leidinni aftur til Torotoro. Frá Umajalanta ad Torotoro eru 6,3 kílómetrar og frá Torotoro ad Tankar Pampa eru 1,7 kílómetrar. Thad var ansi magnad ad sjá risaedlusporin, en thad tharf smá ímyndunarafl til ad sjá fyrir sér edlurnar thramma tharna um. Thad var ekki erfitt med thessa snillinga, sér vid hlid. (Andstaett thví sem ad stendur í Lonely Planet bókinni, thá má ekki hreinsa sporin med bursta), thannig ad vid fylltum thau med raudum sandi í stadinn til ad gera thau skýrari.
Sporin eru í bergi sem kom til af thví ad einu sinni var stoduvatn á thessu svaedi thar sem risaedlurnar komu ad. Vardveittust sporin í mjukum jardveginum sem sídar vard ad bergi. Tankar Pampa var einu sinni landbúnadarland en fyrir einhverjum árum sídan skoladi regnjardveginum í burtu og komu thá sporin í ljós. Thannig ad í rauninni ef ad jardvegur vaeri hreinsadur í burtu á stóru svaedi myndu morg hundrud spor koma í ljós.
Vid verdum líka ad segja ykkur adeins meira frá honum Pablo. Vid fyrstu sýn virtist hann um sextugt en sídar sagdi hann okkur, ad hann vaeri 44 ára!!! Ha, hugsudum vid bara en sogdum ekki neitt. Auk thess ad vera leidsogumadur fyrir túrista er hann bóndi og á átta born, allt strákar. Svona fer lífid hérna og sólin med fólkid. Thad virdist oft eldra en thad er.
En aftur ad Oruro. Vid erum búin ad eyda deginum í dag í slugs hérna, enda erum vid ad bída eftir lestinni til Uyuni en hún fer kl 19:00. Vid aetludum med rútu, en haettum sídan vid. Thad er frekar ótrúlegt en einu rúturnar hérna til Uyuni fara seint á kvoldin og naeturnar. Thar sem lestin var ekki thad rosalega dýr og vid komin med uppí kok af rútum í bili ákvádum vid ad fara frekar med henni. Í Uyuni aetlum vid ad skoda saltsléttuna og eftir thad er stefnan tekin á baeinn Tarija en thad verdur sídasta stopp ádur en vid forum til Argentínu.
Vid aetludum til Potosí ad skoda silfurnámurnar en ákvádum ad sleppa theim. Ferdin í Umajalanta var thad gód og í rauninni svipud og í Potosí nema thad eru námur gerdar af monnum en Umajalanta er audvitad náttúrulegur hellir.
Adios, Dísa og Nonni
Sunday, June 27, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment