Facebook er afar hentugt til thess ad hlada nidur myndum. Thess vegna tókum vid nokkrar vel valdar og smelltum thangad inn í gaer. Ástaedan fyrir thví, var sú ad thessi vefur lá nidri.
http://www.facebook.com/album.php?aid=2067313&id=1442375311
Thessi ferd er ein sú mesta lífsreynsla sem ég hef nokkurn tímann gengid í gegnum (Nonni). Dísa var ad fara til Machu Picchu í annad sinn, en hún fór tharna fyrir 2 árum. Thá thurfti hún hálfpartinn ad hlaupa tharna í gegn, eftir ad hafa gengid upp á Wayna Picchu. Nú gáfum vid okkur hins vegar, gódan tíma í ad skoda svaedid og fengum frábaera leidsogn. Okkur leid bara eins og vid hefdum flust nokkur hundrud ár aftur í tímann.
Nú vardandi thessa ferd thá skodudum vid daemid afar vel ádur en vid logdum af stad. Med thví ad taka bílferdina sporudum vid okkur um thad bil 50-60 túsund krónur en ef vid hefdum tekid lestina alla leid og tilbaka aftur og inn í thví var enginn matur. Thad er greinilega okrad á thessu, einfaldlega af thví ad bílferdin er vaegast sagt ansi slaem.
Vid borgudum 256 dollara (33.280kr) fyrir okkur baedi og fyrir thad fengum vid. Bílferdina, fram og til baka. Hádegismat á leidinni til Aguas Calientes. Lestarmida sídasta spolinn til Aguas Calientes og aftur til baka daginn eftir. Tveggja rétta kvoldrétt í Aguas Calientes og gistingu thar um nóttina á virkilega fínu hosteli, sem innihélt heita sturtu, en thaer eru víst ekki sjálfgefnar hérna. Daginn eftir fengum vid lítinn morgunmatspakka, sem innihélt epli, súkkuladi og smá smjatt, smjatt :) - Adgongumidinn ad Machu Picchu var líka innifalinn, ásamt leidsogumanninum, en midinn sjálfur kostar 6.500kr fyrir manninn.
Thad eina sem stódst ekki hjá thessu fyrirtaeki (www.condetravelperu.com) var ad bíllinn sem vid áttum ad fara med, (tíu manna) biladi, eda svo sogdu their. Thannig ad vid fórum med staerri bíl, sem vard til thess ad vid fórum seinna af stad og urdum heldur lengur á leidinni, bíllinn átti sídan eftir ad bila (sá sem vid fórum med), thannig ad hádegishléid var ekki fyrr en um thrjú-leytid. Ad endingu komum vid til baejarins um klukkan 18:30. Eftir ad hafa lagt af stad um klukkan 07:00 um morguninn, en ekki 05:30 eins og sagt var.
En thetta var allt, vel thess virdi, thví um leid og vid komum til Aguas Calientes, thá lá vid ad madur dytti fram fyrir sig, yfir fegurd stadarins. Thad eru ekki til lýsingarord fyrir sjálfan stadinn og landslagid thar í kring. Vorum eiginlega strax farin ad sjá eftir thví ad thurfa ad fara strax aftur, daginn eftir.
Um kvoldid bordudum vid á veitingastadnum en thar fékk ég mér kjúklingasúpu í forrétt og kjúklingabringu med salati og sósu í adalrétt, á medan Dísa fékk sér tómatsúpu í forrétt og kjot, kartoflur og graenmeti í adalrétt. Eftir matinn drifum okkur upp á hostel, svo madur naedi einhverjum svefni fyrir gonguna. Vid voknudum korter í fjogur, tókum okkur til og hentumst af stad. Skildum hluta af dótinu eftir nidri í móttoku (en stóru bakpokarnir urdu eftir í Cusco á hostelinu thar).
Thví naest var haldid af stad. Vorum um thad bil hálftíma ad ganga ad fjallinu í kolsvarta myrkri, med stjornurnar beint fyrir ofan okkur, í hreint út sagt dásamlegu vedri. Thegar vid komum ad fjallinu hittum vid gonguhóp, sem var blessunarlega med vasaljós medferdis. Vid fylgdum honum thví upp fjallid, upp hverja steintroppuna á faetur annarri. Mikil threkraun ad komast upp á rétt rúmum klukkutíma.
Nú hvad vardar restina á thessum pistli, thá vísa ég á myndirnar á Facebook, og thá sérstaklega thegar vid erum í Machu Picchu. Thar segja meira en morg ord.
Ég aetla samt ad grípa adeins inn í ferdina á leidinni til baka. Vid logdum af stad á laugardeginum med lestinni rétt yfir eitt og áfram hélt sídan ferdalagid med bíl til Cusco. Thangad vorum vid komin rétt um hálf ellefu um kvoldid. Og thar med er sagan ekki búin, thví vid áttum pantad far til Puno, fjogur um nóttina. Vid fengum herbergi á hostelinu og sváfum til thrjú, tókum sídan til, og fórum med leigubíl nidur á rútustodina hálftíma sídar. Ferdin til Puno gekk vel, sem betur fer og var klárlega besta rútuferdin fyrir utan ferdina med Cruz del Sur til Nasza, en hún var líka í allt odrum gaedaflokki, thessi kostadi einungis 36 sol fyrir okkur baedi, eda 1800kr. Fyrirtaekid heitir Power og vid maelum med thví.
Vid komum til Puno á áetlun og fyrsti madur sem vid hittum á, er í samstarfi vid hostelid sem vid gistum á. Thad heitir, The Walk On Inn Puno og er med thví besta sem vid hofum gist á, fyrir einungis 9 dollara, per/nótt/per/pers. Madurinn sem rekur hostelid var svolítid hissa á thví hvad vid vaerum komin snemma frá Cusco og brosti sídan bara thegar vid sogdum honum frá ferdalaginu.
Hér er yndislegt ad vera. Gódur veitingastadur í naestu gotu, vid erum stadsett mjog nálaegt midbaenum og hédan er stutt í allt. Aetlum ad dvelja hérna í tvaer naetur í vidbót og aetlum sídan út á Titicaca vatn, út í eyjarnar sem byggdar eru úr hálmi og stráum. Thar aetlum vid ad gista í eina nótt og koma sídan aftur til Puno. Aetlum hugsanlega ad vera hérna lengur, kannski tvo daga, en sídan verdur haldid áfram yfir til Bólivíu, Copacabana verdur fyrsta stopp og thadan forum vid áfram til La Paz. Í Bólivíu er 4 tíma mismunur, midad vid Ísland, en í Perú er munurinn 5 tímar.
Yfir og út,
Dísa og Nonni
Monday, June 14, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment