Saturday, June 19, 2010

Sábado, 19 de Junio de 2010 (818)

Erum komin til La Paz.

Erum í ferlega lélegum tolvum, thannig ad thetta verdur stutt í thetta skipti. Eins og thid vitid thá fórum vid út á Titicaca vatn (Perú-megin), í flotta siglingu. Gistum ekki eins og vid héldum á fljótandi eyjunum (Uros), heldur komum einungis thar vid, stoppudum í c.a. hálftíma og héldum sídan áfram. Vid aetlum ad segja nánar frá thessu vid taekifaeri, en vid getum thó sagt ad vid holdum áfram ad upplifa, lífshaetti sem eru talsvert frábrugdnir thí sem vid eigum ad venjast heima.

Á Uros eyjunum sefur fólk t.d. í strákofum. Thad tharf einnig ad flytja eyjarnar til til ádur en regntímabilid skellur á, svo thaeir fljóti ekki í burtu thegar vatnsyfirbordid haekkar.

Frá Uros-eyjum héldum vid yfir á adra eyju, en thad var taeplega 3 klst sigling (Thetta er virkilega stórt vatn). Á theirri eyju gistum vid yfir nóttina og voru adstaedurnar svipadar theim sem voru á Íslandi í kringum 1900. Hús byggd úr leir, ekkert rafmagn, einungis kerti, engin kynding. Eldamennskan, jebb fengum mjog gódan mat sem eldadur var á hlódum. Allt rosalega frumstaett.

Um kvoldid fórum vid sídan á dansiball, thar sem vid vorum látin dansa ad haetti innfaeddra. Thetta var kostulegt í alla stadi. Ógleymanleg upplifun.

Daginn eftir var haldid af stad tilbaka. Komum vid á thridju eyjunni og skodudum okkur um. Thegar vid komum til Puno var flest allt lokad vegna verkfalla. Vid vorum thí í talsvert mikilli óvissu um hvort vid kaemumst áfram til Bólivíu daginn eftir. Thad var víst búid ad blokkera alla vegi út úr borginni.

Vid voknudum snemma og bidum eftir ad vid yrdum sótt, tíminn leid og beid og enginn kom. Um átta leytid fréttum vid ad annad fyrirtaeki aetladi yfir, og thá urdum vid ad hafa hradar hendur. Fórum og fengum hluta endurgreiddan, nenntum ekki ad standa í stappi út af 300kr. Fengum mida hjá Panamericano Travel og drifum okkur út á rútustod. Ferdin yfir til Bólivíu gekk vel, ekkert vesen vid landamaerin auk thess sem vid gengum sídasta spolinn frá Perú og yfir til Bólivíu, thad var spes.

Komum til La Paz rétt eftir hádegi og gistum á flottu hosteli, sem er í rauninni hótel, 3 stjornu. Thad heitir hostel Provenzal. Gistum á 4 haed med flottu útsýni yfir midbaeinn, er med badherbergi og sjónvarpi kostar 2850kr/nóttin fyrir okkur baedi.

Stefnum á ad vera hérna í nokkra daga, sídan holdum vid áfram nidur landid og til baejar sem heitir Oruro.

Hafid thad sem allra best. Vid hofum thad gott, thar sem thetta er ódýrasta landid til thessa :)

Kv. Nonni og Dísa

No comments:

Post a Comment