Wednesday, July 28, 2010

Miércoles, 28 de Julio, de 2010 (1090)

Erum komin til Santiago í Chile. Komum yfir Andesfjollin í rútu í gaer. Thetta er í sjálfu sér ekki long leid í kílómetrum talid, en hún tók rúma níu tíma. Útsýnid var alveg frábaert. Vid tóku alveg helling af myndum, sem koma kannski med tímanum inn á Facebook.

Landamaerastodin sem stadsett er uppi í midjum Andes, er med furdulegustu stodum sem vid hofum komid á. Thar thurftum vid ad skrá okkur út úr Argentínu og inn í Chile, umvafin snjó og kulda. Tharna voru skídalyftur út um allt og landslagid eins og ádur segir alveg ótrúlegt. Thetta ferli tók 2-3 klst, enda eru allir stodvadir, thad fer enginn óáreittur hérna í gegn, hvorki rútur, einkabílar né flutningabílar drekkhladnir af dóti. Allt skodad. Hjá okkur var allur farangurinn tekinn úr rútunni, hann gegnumlýstur og sídan voru hundar sem thefudu alla matvoru uppi, enda er med ollu óleyfilegt ad flytja slíkan fjanda yfir til Chile. Vid vissum thad reyndar og lentum thví ekki í neinu. Dísa thurfti ad opna eina ferdatoskuna og gera grein fyrir nokkrum hlutum sem vid hofdum keypt, en ad odru leiti gekk thetta vel fyrir sig.

Aetlum ad dvelja hérna í viku (Santiago), eda allt thar til vid fljúgum til New York. Erum búin ad vera rosalega heppin med gististadi upp á sídkastid, en thessi sem vid erum á núna ber heitid "Green house" og er stadsettur nálaegt midbaenum, (vorum ekki alveg eins heppin med stadsetninguna í Mendoza, thó svo ad hostelid thar hafi verid stórgott).

Rúmid í herbeginu okkar er glaesilegt, sváfum virkilega vaert í nótt, enda hefur thad hitara. Já ég endurtek, rúmid hefur hitara (í rúmdýnunni), hofum aldrei séd thetta ádur, enda var rosalega notalegt ad skrída undir heita saengina í gaerkveldi, en húsin hérna eru ad odru leiti óupphitud. Vorum í augnablikinu ad koma úr morgunverdi, sem innihélt braud, smjor og sultu, ásamt ávaxtasafa. Hann var stórgódur :)

Okkur reiknast til ad klukkan hérna sé (+4) tímum á undan Íslandi.

Verdur ekki lengra í bili, yfir og út, Nonni og Dísa ;)

No comments:

Post a Comment